Mateo Kovacic, miðjumaður enska knattspyrnufélagsins Manchester City, skoraði eitt af mörkum 33. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu.
Kovacic var í byrjunarliði City sem tók á móti Luton á Etihad-vellinum í Manchester en leiknum lauk með stórsigri City, 5:1.
Kovacic skoraði annað mark City á 64. mínútu með frábæru skoti, utarlega í teignum, en þetta var hans fyrsta mark í deildinni á tímabilinu.
Myndband af bestu mörkum 33. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.