Úrvalsdeildin samþykkir eyðsluþak

Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, sem hafnaði tillögunni.
Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, sem hafnaði tillögunni. AFP/Darren Staples

Enska úrvalsdeildin í knattspyrnu karla hefur í grundvallaratriðum samþykkt að koma á fót eyðsluþaki hjá félögum deildarinnar frá og með tímabilinu 2025-26.

Meirihluti félaganna 20 í úrvalsdeildinni, 16 talsins, samþykkti tillöguna á fundi þeirra. Manchester City, Manchester United og Aston Villa lýstu sig mótfallin tillögunni og Chelsea sat hjá.

Eyðsluþakið mun ráðast af þeirri fjárhæð sem tekjulægsta félagið í úrvalsdeildinni aflar sér í gegnum sjónvarpsrétt.

Kæmu í stað núverandi reglna

Verði tillagan formlega samþykkt á ársfundi ensku úrvalsdeildarinnar í júní næstkomandi kæmu reglur um eyðsluþak í stað núverandi reglna um hagnað og sjálfbærni í rekstri.

Með þær til hliðsjónar hefur úrvalsdeildin ákveðið að draga stig af bæði Everton og Nottingham Forest á yfirstandandi tímabili.

Reglurnar um hagnað og sjálfbærni í rekstri hafa sætt gagnrýni af hálfu fjölda félaga í deildinni þar sem þau þykja hampa þeim félögum sem hagnast mest á kostnað hinna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert