Lewis Hamilton hjá Mercedes tók við toppsætinu á seinni æfingu dagsins í Spa Francorchamps og var vel á undan liðsfélaga sínum Nico Rosberg sem ók næsthraðast. Eins og á fyrri æfingunni setti Fernando Alonso hjá Ferrari þriðja besta tímann.
Eins og á fyrri æfingunni var Alonso rétt á eftir seinni Mercedesbílnum, eða ríflega 0,1 sekúndu.
Ökumenn Williams létu að sér kveða, Felipe Massa setti fjórða besta tímann og Valtteri Bottas þann sjötta besta, en á milli þeirra varð Jenson Button hjá McLaren.
Nýliðinn Daniil Kvyat hjá Toro Rosso varð í sjöunda sæti á lista yfir hröðustu hringi, Daniel Ricciardo hjá Red Bull í áttunda, Kevin Magnussen í því níunda og Nico Hülkenberg hjá Force India í því tíunda.
Sebastian Vettel ók ekkert vegna bilana sem urðu í pústkerfi bíls hans á fyrri æfingunni er leidi til innri skemmda í bílnum. Skipta varð um vél og ýmsa íhluti aðra og vannst liðinu ekki tími til að klára það í tæka tíð.
Kimi Räikkönen endaði í 16. sæti en hann kvartaði undan slæmri rásfestu afturdekkjanna á æfingunni.