Kimi Räikkönen mun áfram keppa fyrir Ferrari á næsta ári, að því er liði staðfesti í morgun.
Samningur finnska ökumannsins var framlengdur um eitt ár, út 2018. Hann er sem stendur í fimmta sæti í stigakeppninni um heimsmeistaratitil ökumanna með 116 stig.
Räikkönen varð heimsmeistari ökumanna áruið 2007 og ók þá einnig fyrir Ferrari.