Lewis Hamilton hjá Mercedes fór með sigur í kappakstrinum í Barein í dag en hans verður minnst vegna hrikalegs slyss franska ökumannsins Romain Grosjean hjá Haas.
Eftir samstuð á fyrsta hring flaug bíll Grosjean út úr brautinni og stakkst hálfur gegnum óburðugt grindverk. Brotnaði bíllinn í tvennt og gríðarlegur eldblossi kviknaði samstundis. Útlitið virtist og tíminn leið hægt uns Grosjean birtist í bálinu og gat forðað sér burt. Hann mun hafa meiðst í klessunni og átökunum við að komast út úr brakinu.
Þegar loks var hægt að hefja keppni langleiðina í tveimur stundum seinna var keppni aðeins rétt byrjuð er Racing Point bíll Lance Stroll flaug í loft upp við samstuð í beygju og kom niður á jörðina á hvolvi. Stroll skreið ómeiddur út úr bílnum.
Íöðru sæti í mark varð Max Verstappen hjá Red Bull og liðsfélagi hans Alex Albon varð þriðji.
Röð keppenda í fjórða til tíunda sæti varð sem hér segir: Lando Norris og Carlos Sainz hjá McLaren, Pierre Gasly hjá Alphatauri, Daniel Ricciardo á Renault, Valtteri Bottas á Mercedes, Esteban Ocon á Renault og Charles Leclerc á Ferrari.