Knattspyrnumenn æfa körfubolta

Ætli Oliver Kahn sé góður í körfubolta?
Ætli Oliver Kahn sé góður í körfubolta? Reuters

Þjálfarar fara ekki alltaf hefðbundnar leiðir til að ná markmiðum sínum eins og fjölmörg dæmi sanna. Joachim Löw, landsliðsþjálfari Þjóðverja er til dæmis með sína menn á körfuboltaæfingum þessa dagana.

Þýska þjálfaranum hefur þótt leikmenn sínir brjóta full mikið af sér þegar þeir verjast og vill laga það með þessum körfuboltaæfingum. Hann segist alltaf hafa hrifist af varnartækni körfuboltamanna og fékk því Denis Wucherer, fyrrum landsliðsþjálfara í körfu, til að hjálpa til við æfingarnar.

Hvort fundist hafa einhverjir leyndir hæfileikar hjá þýska landsliðinu í fótbolta skal ósagt látið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert