Sara Björk Gunnarsdóttir skoraði eitt af mörkum Rosengård þegar liðið burstaði Vittsjö, 7:1, i sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.
Sara Björk, sem er fyrirliði Rosengård, skoraði þriðja mark liðsins en hún lék allan tímann sem og markvörðurinn Þóra B. Helgadóttir. Rosengård hefur unnið tvo fyrstu leiki sína í deildinni.