Alþjóða knattspyrnusambandið, FIFA, tilkynnti í dag að spænska meistaraliðið Barcelona gæti keypt leikmenn á komandi sumri og aflétti til bráðabirgða banninu sem félagið var úrskurðað í fyrr í þessum mánuði.
Það er með fyrirvara um áfrýjun en Barcelona hafði staðfest þá ákvörðun sína að áfrýja úrskurðinum. Samkvæmt honum var Barcelona bannað að kaupa leikmenn í næstu tveimur félagaskiptagluggum, í sumar og í janúar 2015, en FIFA taldi að félagið hefði brotið reglur um félagaskipti ungra erlendra leikmanna.