Olic framlengdi við Wolfsburg

vica Olic, fyrir miðju, fagnar marki með Wolfsburg.
vica Olic, fyrir miðju, fagnar marki með Wolfsburg. AFP

Króatíski framherjinn Ivica Olic sem hefur verið sterklega orðaður við enska úrvalsdeildarliðið Stoke City er búinn að framlengja samning sinn við þýska liðið Wolfsburg.

Olic, sem er 34 ára gamall, framlengdi samning sinn við þýska liðið um tvö ár en samningur hans við félagið átti að renna út í sumar.

„Ég er ánægður að mín mál séu komin á hreint og ég er ánægður að vera áfram í herbúðum Wolfsburg,“ segir Króatinn, sem er markahæsti leikmaður liðsins á tímabilinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert