Fyrsti heimaleikur Real Sociedad, hins nýja liðs Alfreðs Finnbogasonar, er gegn stórveldinu Real Madríd 30. eða 31. ágúst, en leikjaniðurröðun spænsku 1. deildarinnar í knattspyrnu var birt í dag.
Alfreð og félagar byrja tímabilið á útileik gegn nýliðum Eibar en þá spilar Real Madríd á heimavelli gegn Córdoba og Barcelona leikur á heimavelli gegn Elche.
„Ég hef heyrt að þeir séu með ágætt lið!" skrifar Alfreð á Twitter og vísar þar til heimaleiksins gegn Real Madríd.