Franski landsliðsmaðurinn Antoine Griezmann gekk í dag formlega í raðir spænska meistaraliðsins Atlético Madrídar frá Real Sociedad. Griezmann er 23 ára framherji og Atlético greiðir 30 milljónir evra fyrir hann.
Griezmann er ætlað að hressa upp á sóknarleik Atlético Madrídar eftir að félagið seldi Diego Costa til Chelsa fyrr í sumar. Þó var Madrídarliðið einnig búið að fá króatíska framherjann Mario Mandzukic frá Bayern München í sumar.
Griezmann hefur spilað 179 deildarleiki fyrir Sociedad frá árinu 2009 og skorað 49 mörk. Þá á hann að baki 9 A-landsleiki fyrir Frakkland og hefur skorað í þeim 3 mörk.