Kristinn Steindórsson skoraði fyrsta mark Halmstad í kvöld þegar liðið vann 4:1-sigur á Helsingborg í Íslendingaslag í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.
Kristinn hefur þar með skorað sjö mörk fyrir Halmstad á tímabilinu og er markahæstur í liðinu ásamt Mikael Boman sem skoraði tvennu í kvöld.
Kristinn lék allan leikinn og Guðjón Baldvinsson kom inná sem varamaður hjá Halmstad á 75. mínútu.
Guðlaugur Victor Pálsson lék allan leikinn fyrir Helsingborg og Arnór Smárason fram á 66. mínútu.