Frakkinn Franck Ribery verður ekki með Bayern München gegn Manchester City í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu annað kvöld vegna meiðsla. Þá er Hollendingurinn Arjen Robben einnig tæpur vegna meiðsla.
„Franck er ekki hér í München. Hann fór heim til sín, til Frakklands í gær til að hitta lækni og í dag tjáði hann mér að hann gæti ekki spilað með okkur í Meistaradeildinni annað kvöld,“ sagði Spánverjinn Pep Guardiola knattspyrnustjóri Bayern á blaðamannafundi í München í dag.
Bayern München og Manchester City leika í E-riðli, riðlakeppni Meistaradeildarinnar ásamt CSKA Moskvu frá Rússlandi og Roma frá Ítalíu.