Kjartan Henry Finnbogason skoraði í dag sitt fyrsta mark fyrir danska B-deildarliðið Horsens, þegar hann skoraði síðara mark liðsins gegn Brabrand í dönsku bikarkeppninni í knattspyrnu í dag, í leik sem lauk 2:1 fyrir Horsens.
Kjartan Henry gekk í raðir Horsens frá KR um síðustu mánaðamót, en þjálfari Horsens er Daninn Bo Henriksen sem lék eitt sinn á Íslandi með Val, Fram og ÍBV.