Ögmundur Kristinsson lék í dag sinn fyrsta aðalliðs leik fyrir danska knattspyrnuliðið Randers, þegar Randers burstaði B-lið Kolding í dönsku bikarkeppninni í knattspynu 7:1. Ögmundur gekk í raðir Randers frá Fram í sumar, og hefur verið varamarkvörður í leikjum liðsins í dönsku úrvalsdeildinni.
Ögmundur leikur þó alla leiki varaliðs Randers og er fyrirliði varaliðsins. Margir fastamenn Randers voru hvíldir í bikarleiknum í dag, meðal annars Theodór Elmar Bjarnason sem ekki var í leikmannahóp Randers.