Ólafur Helgi Kristjánsson og lærisveinar hans í danska úrvalsdeildarliðinu Nordsjælland komust upp í annað sæti deildarinnar í kvöld þegar þeir unnu OB, 2:1, á heimavelli, Farum Park. Nordsjælland er nú tveimur stigum á eftir Midtjylland þegar níu umferðir eru að baki í deildinni.
Rúnar Alex Rúnarsson, markvörður, var á meðal varamanna Nordjælland-liðsins en Adam Örn Arnarson var ekki í leikmannahópnum.
Ari Freyr Skúlason tók út leikbann og var þar af leiðandi ekki með OB sem er í næst neðsta sæti.