Podolski farinn til Tyrklands

Lukas Podolski.
Lukas Podolski. AFP

Þjóðverjinn Lukas Podolski er genginn til liðs við Galatasaray í Tyrklandi, en hann kemur til liðsins frá enska úrvalsdeildarliðinu Arsenal.

Podolski var í varahlutverki hjá Arsenal á síðasta tímabili og var lánaður til Inter Mílanó þar sem hann náði sér heldur ekki á strik. Hann varð heimsmeistari með Þjóðverjum í fyrra, en fékk þau skilaboð að hann þyrfti að spila reglulega ætlaði hann sér að fara með Þjóðverjum á lokakeppni Evrópumótsins í Frakklandi næsta sumar.

Talið er að Galatasaray borgi fjórar milljónir evra fyrir hinn þrítuga Podolski og skrifaði hann undir þriggja ára samning.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka