Óopinber Twitter-síða kínverska liðsins Jiangsu Guoxin-Sainty, sem Viðar Örn Kjartansson og Sölvi Geir Ottesen leika með, birti í dag orðróm um að Rúmeninn Dan Petrescu gæti verið að taka við liðinu.
Petrescu er þjálfari rúmenska liðsins ASA Targu Mures, sem lenti í öðru sæti rúmensku deildarinnar á síðastliðnu tímabili.
Petrescu lék á sínum tíma með liðum á borð við Steaua Búkarest, Sheffield Wednesday, Chelsea, Bradford City og Southampton.