Einn leikmaður brasilíska landsliðsins í knattspyrnu féll á lyfjaprófi sem hann gekkst undir í S-Ameríkukeppninni í fótbolta í sumar, Copa America.
Leikmaðurinn sem um ræðir er hinn 22 ára gamli Fred. A-lyfjasýni sem tekið var honum mældist jákvætt og er nú beðið eftir niðurstöðu úr B-sýninu.
Fred leikur með Shahktar Donetsk í Úkraínu og hefur í mörg ár verið talin einn efnilegasti fótboltamaður í heimi. Hann var í byrjunarliði Brasilíumanna í tveimur leikjum á mótinu.