Bandaríski landsliðsmaðurinn Aron Jóhannsson kemur til með að leika með Werder Bremen í þýsku 1. deildinni í vetur. Þetta staðfestir AZ Alkmaar á heimasíðu sinni.
Aron heldur nú til Þýskalands og ræðir kaup og kjör við Werder Bremen. Í viðtali við vef AZ segir Aron að það sé góð tilfinning að taka næsta skref á ferlinum. „Það er augljóslega gott að fara í þýsku deildina sem er ein sú besta í heiminum.“
Þá segir Aron að hann komi til með að sakna AZ Alkmaar enda lærði hann mikið á tíma sínum þar.