Írland sigraði Þýskaland 1:0 er þjóðirnar mættust í undankeppni EM í kvöld en Shane Long skoraði sigurmarkið tuttugu mínútum fyrir leikslok.
D-riðillinn er orðinn afar spennandi fyrir síðustu leikina en Þýskaland er í efsta sætinu með 19 stig á meðan Pólland er í 2. sæti með 18 stig. Írland kemur svo í 3. sæti með jafnmörg stig.
Shane Long sá til þess að lokaumferðin yrði svona spennandi en hann skoraði sigurmark Íra gegn Þjóðverjum á 70. mínútu í kvöld.
Þetta þýðir það að Írland og Pólland spila hreinan úrslitaleik um sæti á EM í lokaleik riðilsins en Pólland er þó með mun betri markatölu og nægir því jafntefli.