Barcelona getur í kvöld slegið félagsmet þegar liðið sækir Valencia heim í spænsku bikarkeppninni í knattspyrnu í kvöld.
Börsungar jöfnuðu félagsmetið um síðustu helgi þegar þeir spiluðu 28. leikinn í röð án ósigur og góðar líkur eru á að metið falli í kvöld.
Fyrri leik liðanna í síðustu viku lauk með 7:0 sigri Barcelona.