Cristiano Ronaldo, fyrirliði portúgalska landsliðsins og leikmaður Real Madrid, fór haltrandi af æfingu liðsins í dag. Ekki er enn ljóst hvort meiðslin séu alvarleg.
Ronaldo hélt um vinstri lærvöðvann eftir að Dani Carvajal ýtti við bakið á honum. Þessi meiðsli koma á versta tíma en úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu er á laugardaginn næsta þar sem Real Madrid mætir grönnunum Atlético.
Portúgalir, sem eru í F-riðli ásamt Íslandi, halda eflaust inni andanum enda er Evrópumót landsliða í Frakklandi á næsta leiti og myndi fjarvera fyrirliðans kosta þá dýrt.
Silence as Cristiano Ronaldo goes down in training. Carvajal pushes him from behind into goalkeeper pic.twitter.com/aP8JUkXGr1
— Ed Malyon (@eaamalyon) May 24, 2016