Raphal Varane, varnarmaður Real Madrid og franska landsliðsins í knattspyrnu karla, verður ekki með í lokakeppni EM sem fram fer í Frakklandi í júní og júlí.
Varane tognaði aftan í læri á æfingu með Real Madrid á dögunum og nú er ljóst að meiðsli hans verða til þess að Didier Deschamps, þjálfari franska liðsins, ákvað að velja Varane ekki í leikmannahóp liðsins fyrir EM.
Meiðsli Varane gætu ekki komið upp á verri tíma, en franski varnarmaðurinn mun einnig missa af úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu þar sem Real Madrid mætir nágrönnum sínum, Atlético Madrid.