Mauricio Pochettino, knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarliðsins Tottenham, hafnaði í morgun orðrómi þess efnis að hann tæki við þjálfun argentínska landsliðsins í knattspyrnu.
Gerardo Martino hætti sem landsliðsþjálfari í síðasta mánuði og hafa Pochettino og Diego Simeone verið orðaðir við starfið. Pochettino segist þó ekki á förum frá Tottenham en vangavelturnar séu eðlilegar.
„Ég tel að vangavelturnar séu eðlilegar vegna þess að ég er Argentínumaður og stýri einu af bestu liðunum á Englandi,“ sagði Pochettino á blaðamannafundi í morgun.
„Mikið af orðrómum og sögusögnum birtist í fjölmiðlum en ég er ánægður hjá Tottenham. Þess vegna er þetta ekki rétti tíminn til að taka við landsliðinu,“ bætti Pochettino við.