Mbl.is greindi á dögunum frá því að eigandi ítalska félagsliðsins Napoli, Aurelio De Laurentiis, hefði kallað framherjann Gonzalo Higuain svikara fyrir að þiggja samningstilboð Juventus. Higuain hefur nú svarað fyrir sig og segir að De Laurentiis hafi verið ástæðan fyrir ákvörðuninni.
„Það var á endanum mín ákvörðun að fara en De Laurentiis ýtti mér út í það. Mig langar að þakka stuðningsmönnunum og liðsfélögunum en ekki De Laurentiis. Sambandið milli okkar var alveg horfið, ég þoldi ekki aðra mínútu með honum,“ sagði Higuain.
Gonzalo Higuain er 28 ára argentínskur framherji. Hann gekk í raðir Napoli frá Real Madrid árið 2013 og hefur skorað 71 mark í 104 leikjum og á síðasta tímabili sló hann markamet í ítölsku deildinni þegar hann skoraði 36 mörk yfir tímabilið.