Björn Daníel Sverrisson, leikmaður Viking í Noregi, er á leið til danska úrvalsdeildarfélagsins AGF, en þetta kemur fram í norska blaðinu Aftenposten í dag.
Björn, sem er fæddur árið 1990, hefur verið lykilmaður í liði Viking síðustu tvö ár en hann kom til liðsins frá FH árið 2014.
Hann er nú á leið til danska úrvalsdeildarfélagsins AGF en hann mun skrifa undir þriggja ára samning við félagið á allra næstu dögum.
Björn átti aðeins hálft ár eftir af samning sínum við Viking en norska liðið fékk rúmlega 500 þúsund norskar krónur fyrir hann eða sjö milljónir íslenskra króna.