Sóknarmaðurinn Eiður Smári Guðjohnsen glímir við meiðsli og mun af þeim sökum líklega ekkert leika með Pune City í indversku ofurdeildinni sem hefst um næstu helgi.
Samkvæmt erlendum fjölmiðlum meiddist Eiður á undirbúningstímabilinu en hann hefur ekki æft með liðinu síðustu daga og lék ekki æfingaleik á dögunum.
Eiður mun halda aftur til Evrópu þar sem nánar verður hugað að meiðslunum. Pune City leikur fyrsta leik sinn 3. október þegar það tekur á móti Mumbai City en forráðamenn liðsins vonast til að Eiður nái einhverjum leikjum.
Tímabilið í indversku ofurdeildinni er stutt en keppni hefst eins og áður segir um næstu helgi og úrslitaleikur um titilinn verður leikinn nokkrum dögum fyrir jól.