Frank de Boer, þjálfari ítalska knattspyrnuliðsins Inter Milan, er orðinn mjög valtur í sessi, en liðið tapaði í dag sínum þriðja deildarleik þegar það lá fyrir Atalanta, 2:1.
Inter er í 14. sæti deildarinnar og er aðeins fimm stigum frá fallsæti, en de Boer tók við liðinu rétt fyrir tímabilið þegar Roberto Mancini hætti.
Fjölmiðlar á Ítalíu greina frá því í kvöld að de Boer hafi verið boðaður á neyðarfund í vikunni þar sem mál hans verður rætt en margir telja að Hollendingurinn verði látinn taka poka sinn.