Kjartan allt í öllu í sigri Horsens

Kjartan Henry Finnbogason skoraði og lagði upp í kvöld.
Kjartan Henry Finnbogason skoraði og lagði upp í kvöld.

Kjartan Henry Finnbogason, leikmaður Horsens í Danmörku, var frábær í 3:0 sigri liðsins á Aab í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Hann skoraði og lagði upp.

Horsens er nýliði í dönsku úrvalsdeildinni en liðið hefur spilað afar vel það sem af er tímabili.

Aab var fyrir leikinn í kvöld sæti ofar en Horsens og var búist við afar jöfnum leik en nýliðarnir unnu þó góðan þriggja marka sigur.

Kjartan Henry skoraði fyrsta mark leiksins eftir sendingur frá Conor O'Brien. Kjartan lagði svo upp annað mark leiksins áður en O'Brien gulltryggði sigurinn með þriðja markinu. Kjartan fór síðan af velli á 79. mínútu.

Kjartan er kominn með sex mörk í tuttugu leikjum í deildinni, auk þess sem hann hefur lagt upp eitt.

Horsens er í sjöunda sæti deildarinnar með 27 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert