Barcelona minnkaði forystu Real Madrid á toppi spænsku efstu deildarinnar í knattspyrnu karla í þrjú stig með 3:0-sigri sínum gegn Osasuna í 15. umferð deildarinnar í hádeginu í dag.
Luis Suárez kom Barcelona yfir á 59. mínútu leiksins og Lionel Messi bætti síðan tveimur mörkum við fyrir Barcelona annars vegar á 73. mínútu leiksins og á lokaandartökum leiksins hins vegar.
Real Madrid getur náð sex stiga forskoti á nýjan leik með sigri í leik sínum gegn Deportivo La Coruna sem fram fer á Santiago Bernabéu klukkan 19.45 í kvöld.