Liðsfélagar landsliðsmannsins Emils Hallfreðssonar í Udinese í serie A, efstu deild ítalska fótboltans, biðu lægri hlut gegn Lazio, 1:0, á útivelli í dag.
Sigurmark leiksins í dag skoraði Ciro Immobile fyrir Lazio úr vítaspyrnu á 72. mínútu.
Emil var fjarri góðu gamni í dag en hann tók út leikbann vegna fimm gulra spjalda en hafði fyrir leikinn í dag verið fimm leiki í röð í byrjunarliðinu.
Udinese hefur 29 stig í 14. sæti deildarinnar en siglir lygnan sjó enda 14 stig í fallsæti. Lazio hefur 50 stig í 5. sæti og er fjórum stigum frá meistaradeildarsæti.