Írski knattspyrnumaðurinn Seamus Coleman meiddist afar illa í markalausa jafntefli Írlands og Wales í gær, í undankeppni HM, sem fram fer í Rússlandi á næsta ári. Neil Taylor tæklaði Coleman groddaralega með þeim afleiðingum að Coleman fótbrotnaði.
Coleman verður frá í ansi langan tíma, sem er mikil blóðtaka fyrir Íra, þar sem hann er landsliðsfyrirliði. Hann er einnig fastamaður í hægri bakvarðastöðinni hjá enska félaginu Everton.
Hér að neðan má sjá mynd af fótbroti Coleman, sem er vægast sagt skelfilegt.