Cristiano Ronaldo skoraði sitt 70. mark fyrir portúgalska landsliðið í 3:0 sigri þess gegn Ungverjum í undankeppni HM í knattspyrnu í Lissabon í gærkvöld.
Ronaldo skoraði tvö síðustu mörk Portúgala og með síðara markinu skoraði hann sitt 70. mark í 137 leikjum með Portúgal.
Frá byrjun árs 2016 hefur Ronaldo skorað 14 mörk í 14 leikjum með portúgalska landsliðinu.