Hyggjast áfrýja rauða spjaldinu

Sergio Ramos sækir að marki Barcelona í gærkvöld.
Sergio Ramos sækir að marki Barcelona í gærkvöld. AFP

Real Madrid hyggst áfrýja rauða spjaldinu sem miðvörðurinn Sergio Ramos fékk fyrir brot á Lionel Messi í viðureign Real Madrid og Barcelona á Santiago Bernabeu í gærkvöld.

Ramos fékk reisupassann á 77. mínútu. Forráðamenn Madridarliðins telja að ákvörðun dómarans hafi ekki verið rétt og sjálfur lét Lionel Messi hafa eftir sér að brot Ramosar hafi ekki verðskuldað beint rautt spjald en miðvörðurinn öflugi á yfir höfði sér eins leiks bann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert