Bale úr leik á næstunni

Gareth Bale er niðurlútur en Lionel Messi fagnar í bakgrunni.
Gareth Bale er niðurlútur en Lionel Messi fagnar í bakgrunni. AFP

Gareth Bale mun ekki geta tekið þátt í undanúrslitaleikjum Real Madrid við Atlétio Madrid í næsta mánuði, en hann fór meiddur af velli í tapinu gegn Barcelona um helgina.

Real hefur staðfest að Bale meiddist á kálfa, en hefur ekki gefið nánar út eðli meiðslanna. Spænski miðillinn AS fullyrðir hins vegar að Bale verði frá næsta mánuðinn.

Það þýðir að komist Real í úrslit Meistaradeildarinnar ætti hann að vera klár í þann slag, en úrslitaleikurinn fer fram þann 3. júní. Hann verður hins vegar fjarri góðu gamni í næstu deildarleikjum Real, sem háir harða baráttu við Barcelona um spænska meistaratitilinn.

Bale hefur mikið glímt við meiðsli á leiktíðinni og var meðal annars frá í fjóra mánuði fyrr á tímabilinu vegna meiðsla í ökkla. Hann hefur skorað 9 mörk í 26 leikjum í öllum keppnum með Rel á leiktíðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert