Ramos úrskurðaður í leikbann

Sergio Ramos.
Sergio Ramos. AFP

Sergio Ramos, miðvörðurinn sterki í liði Evrópumeistara Real Madrid, var í dag úrskurðaður í eins leiks bann af aganefnd spænska knattspyrnusambandsins.

Ramos fékk að líta rauða spjaldið eftir brot á Lioel Messi í viðureign Real Madrid og Barcelona á sunnudagskvöldið þar sem Börsungar fögnuðu sigri, 3:2, í frábærum leik á Santiago Bernabeu.

Ramos tekur leikbannið út annað kvöld þegar Real Madrid sækir Deportivo La Coruna heim.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert