Lyon er komið í úrslit Meistaradeildar kvenna í knattspyrnu þrátt fyrir 1:0 tap á heimavelli gegn Manchester City í seinni leik liðanna í undanúrslitum í kvöld.
Lyon vann fyrri viðureignina í Manchester 3:1 og stóð því vel að vígi fyrir leik kvöldsins. Það kom því ekki að sök fyrir þær frönsku þegar Carli Lloyd skoraði eina mark leiksins á 57. mínútu. Lyon komst áfram, 3:2 samanlagt.
Það verður því franskur slagur í úrslitum en Lyon mætir Paris Saint Germain í úrslitaleiknum. Parísarliðið vann Barcelona samanlagt 5:1.