Borussia Dortmund vann í dag langþráðan bikarmeistaratitil er liðið lagði Eintracht Frankfurt að velli, 2:1. Pierre-Emerick Aubameyang skoraði sigurmark leiksins úr vítaspyrnu.
Um fjórða bikarúrslitaleik Dortmund var að ræða í röð en liðið hafði tapað síðastliðin þrjú ár.
Ousmane Dembele kom Dortmund í 1:0 eftir 8 mínútna leik en Ante Reib jafnaði metin fyrir Frankfurt á 29. mínútu.
Aubameyang skoraði svo sigurmarkið úr vítaspyrnu á 67. mínútu.