Arnór Smárason lagði upp bæði mörk Hammarby sem gerði 2:2 jafntefli við Jönköping í sænsku A-deildinni í knattspyrnu í dag. Arnór spilaði allan leikinn, eins og Birkir Már Sævarsson og Ögmundur Kristinsson.
Elías Már Ómarsson lagði svo upp mark í 1:1 jafntefli Gautaborgar gegn Elfsborg. Elías spilaði allan leikinn og er Gautaborg í 10. sæti deildarinnar með 14 stig á meðan Hammarby er í 7. sæti með 15 stig.