Enrique Cerezo, forseti spænska knattspyrnufélagsins Atletico Madrid segir að Antoine Griezmann sé ekki á förum frá félaginu, þrátt fyrir mikinn áhuga Manchester United.
Talið er að Griezmann sé efstur á óskalista José Mourinho, stjóra United, og ku Griezmann vera opinn fyrir því að færa sig til Englands. Cerezo virðist þó hafa litlar áhyggur á því að Frakkinn færi sig um set.
„Griezmann verður hér áfram og hann hefur sagt á Twitter að hann sé ekki búinn að skipta um félag. Allar sögusagnirnar eru rangar,“ sagði Cerezo við Marca.