Landsliðskonurnar Hallbera Guðný Gísladóttir og Guðbjörg Gunnarsdóttir spiluðu báðar allan leikinn í 2:0 sigri Djurgården á Gautaborg í sænsku A-deildinni í knattspyrnu í dag.
Djurgården hefur nú unnið þrjá leiki í röð, án þess að fá á sig mark, eftir erfiða byrjun á mótinu og er liðið í 4. sæti deildarinnar með 15 stig eftir tíu leiki.