Argentínski knattspyrnumaðurinn Lionel Messi hjá Barcelona hefur samþykkt að borga hærri sekt fyrir skattsvik sín og hreinsa þannig nafn sitt frá því að hafa verið dæmdur í skilorðsbundið fangelsi.
Messi var á síðasta ári dæmdur til 21 mánaðar fangelsisvistar og til þess að greiða 2 milljónir evra í sekt. Ákæran snerist um skattsvik sem námu 4,1 milljón evra á tímabilinu 2007 til 2009 en faðir Messi, Jorge Messi, var dæmdur í 15 mánaða fangelsi.
Hæstiréttur Spánar staðfesti dóminn í síðasta mánuði, en Messi mun nú hins vegar borga um 250 þúsund evrur til viðbótar við fyrrnefnda sekt og mun þá ekki eiga það á hættu að rjúfa skilorð og þurfa að sitja af sér dóminn.