„Sanchez er frábær leikmaður“

Arturo Vidal.
Arturo Vidal. AFP

Sílebúinn Arturo Vidal, miðvallarleikmaður þýsku meistaranna í Bayern München, hrósar landa sínum Alexis Sanchez og talar um að hann sé stórbrotinn leikmaður.

Vidal sagði þýska miðlinum Bild að Sanchez myndi bæta lið Bayern til mikilla muna ef hann færi frá Arsenal til Þýskalands.

„Við sjáum hvað setur,“ sagði Vidal en Sanchez hefur verið orðaður við brottför frá Arsenal í sumar.

„Ég veit ekki hver staðan er núna en ég veit að hann er frábær leikmaður. Við myndum án nokkurs vafa bæta okkur mikið með hann innanborðs.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert