Spænska knattspyrnufélagið Sevilla hefur staðfest að Argentínumaðurinn Ever Banega muni ganga í raðir félagsins frá Inter í sumar. Banega var í tvö ár hjá Sevilla áður en hann fór til Inter á síðasta ári, en nú er hann á leiðinni til Sevilla á nýjan leik.
Banega skrifar undir þriggja ára samning við Sevilla eftir að hafa aðeins leikið 20 leiki fyrir Inter á síðustu leiktíð. Hann skoraði sex mörk og lagði upp átta til viðbótar í ítölsku deildinni.