Knattspyrnumaðurinn Kjartan Henry Finnbogason hafnaði tilboði frá Dinamo Brest, sem leikur í efstu deild í Hvíta-Rússlandi. Kjartan verður líklega áfram í herbúðum danska A-deildarfélagsins Horsens. Þetta staðfesti Ólafur Garðarsson, umboðsmaður Kjartans, við fotbolti.net.
Dinamo Brest er í 11. sæti af 16 liðum í Hvíta-Rússlandi eftir fjórtán umferðir. Kjartan hefur verið hjá Horsens í þrjú ár og hjálpaði hann liðinu m.a að komast upp í efstu deild. Hann skoraði svo tíu mörk í efstu deildinni á síðustu leiktíð.