Neymar bestur gegn Juventus

Neymar sækir að marki Juventus í leiknum í kvöld.
Neymar sækir að marki Juventus í leiknum í kvöld. AFP

Brasilíumaðurinn Neymar lét ekki umræðurnar um væntanlega sölu hans frá Barcelona til París SG fyrir algjöra metupphæð á sig fá í kvöld þegar hann skoraði bæði mörk Katalóníuliðsins sem sigraði Juventus, 2:1, í East Rutherford í New Jersey.

Neymar gerði bæði mörkin í fyrri hálfleik, það seinna með glæsilegum einleik í gegnum vörn Juventus, og hann var útnefndur maður leiksins í leikslok.

Giorgio Chiellini minnkaði muninn fyrir Juventus í síðari hálfleiknum.

Fyrr í kvöld skýrði ESPN frá því að samkvæmt áreiðanlegum heimildum hefði Neymar staðfest við Parísarfélagið að hann vildi gana til liðs við það en félögin ættu eftir að komast að samkomulagi um kaupverðið, sem hefur verið sagt vera nálægt 200 milljónum punda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert