Birkir Már lagði upp mark í sigurleik

Birkir Már Sævarsson lagði upp mark í dag.
Birkir Már Sævarsson lagði upp mark í dag. Ljósmynd/Heimasíða Hammarby

Hammarby hafði betur gegn Elfsborg í sænsku A-deildinni í knattspyrnu í kvöld, 2:1. Birkir Már Sævarsson, Arnór Smárason og Ögmundur Kristjánsson léku allan leikinn fyrir Hammarby og Birkir Már lagði upp fyrra mark liðsins. 

Birkir átti þá sendingu á Bjørn Paulsen sem skoraði með fallegu skoti á 21. mínútu. Daniel Gustavsson jafnaði leikinn fyrir Elfsborg, sjö mínútum síðar en Bjørn Paulsen skoraði sitt annað mark á 54. mínútu og reyndist það sigurmark leiksins. 

Hammarby er í 9. sæti af 16 liðum í deildinni með 24 stig eftir 16 umferðir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert