Borgaði yfir milljarð til að skipta um lið

Pablo Fornals í leik með Málaga.
Pablo Fornals í leik með Málaga. AFP

Pablo Fornals hefur gengið í raðir spænska knattspyrnufélagsins Villarreal frá Málaga. Félagsskiptin eru mjög sérstök að því leyti að hann borgaði kaupverðið, sem nam 10,7 milljónum punda, eða tæplega einum og hálfum milljarði íslenskra króna, úr eigin vasa til að fá þau í gegn.

Fornals er 21 árs og uppalinn hjá Villarreal en hann hefur leikið með Málaga síðan árið 2014. Hann á einn landsleik fyrir Spánverja og er hann talinn á meðal efnilegustu miðjumanna spænsku deildarinnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert