Franski knattspyrnumaðurinn Blaise Matuidi er mættur til Torínó á Ítalíu þar sem hann mun gangast undir læknisskoðun hjá ítalska A-deildarfélaginu Juventus. Matuidi hefur verið hjá PSG í Frakklandi síðan árið 2011.
Matuidi hefur fjórum sinnum orðið Frakklandsmeistari með PSG og skoraði hann fjögur mörk í 34 leikjum á síðustu leiktíð. Talið er að Juventus borgi um 20 milljónir evra fyrir Matuidi.